Listinn ekki réttur

Ágætis framtak hjá blaðurmanni MBL hér en samt var ekki farið eftir eigin forsendum við gerð listans.   Ég skellti þessu upp eftir þessum forsendum og þá er listinn :

SætiBíllKaupverðEyðslaB/D3ár eyðsla3ára verð
1Suzuki Alto1.890.000 kr.4,4B839.850 kr.2.729.850 kr.
2Kia Rio2.660.777 kr.3,6D678.510 kr.3.339.287 kr.
3Nissan Micra2.390.000 kr.5B954.375 kr.3.344.375 kr.
4Citroen C32.750.000 kr.3,4D640.815 kr.3.390.815 kr.
5VW Polo2.730.000 kr.3,8D716.205 kr.3.446.205 kr.
6Hyundai i202.790.000 kr.3,8D716.205 kr.3.506.205 kr.
7Ford Fiesta2.890.000 kr.3,7D697.358 kr.3.587.358 kr.
8Skoda Fabia2.990.000 kr.4,2D791.595 kr.3.781.595 kr.
9Peugeot 2083.240.000 kr.3,4D640.815 kr.3.880.815 kr.
10Renault Megane3.350.000 kr.3,5D659.663 kr.4.009.663 kr.
11Mazda 33.590.000 kr.4,3D810.443 kr.4.400.443 kr.
12Audi A13.690.000 kr.3,8D716.205 kr.4.406.205 kr.
13Dacia Duster3.990.000 kr.5,3B1.011.638 kr.5.001.638 kr.
14BMW 116Ed4.290.000 kr.3,8D716.205 kr.5.006.205 kr.
15Honda Civic4.390.000 kr.4,4D829.290 kr.5.219.290 kr.
16Opel Astra4.590.000 kr.3,4D640.815 kr.5.230.815 kr.
17Mbenz A1804.870.000 kr.3,8D716.205 kr.5.586.205 kr.
18Volvo V404.990.000 kr.3,6D678.510 kr.5.668.510 kr.
19Lexus CT 200h5.710.000 kr.3,8B725.325 kr.6.435.325 kr.
20Toyota Prius6.190.000 kr.2,1B400.838 kr.6.590.838 kr.
21Mitsubishi ASX5.750.000 kr.5,1D961.223 kr.6.711.223 kr.
22Chevy Volt7.590.000 kr.1,2B229.050 kr.7.819.050 kr.
23Isuzu D-Max6.890.000 kr.7,4D1.394.715 kr.8.284.715 kr.
24Opel Ampera7.990.000 kr.1,6B305.400 kr.8.295.400 kr.
25Range Rover Evoque8.770.000 kr.5D942.375 kr.9.712.375 kr.

 

Hann er að flestu leiti eins en Volt og Isuzu víxla sætum, Mitsubishi ASX og Prius vixla sætum og Nissan Micra og Kia Rio víxla einnig sætum.  Annað sem gerist er að munurinn á milli sumra bíla verður það lítill að röðunin skiptir nánast engu máli.  Í gamla listanum voru 5 efstu sætin á undir 3 mílljón í 3ára rekstri, en nú er bara einn bíll undir 3 milljónum. 

Til gamans má taka notaðan bíl eins og ég ek um á og sjá hvernig hann kæmi út í þessari töflu:

Subaru Forester 1998 - Kaupverð  400 þúsund kr. Eyðsla 11 l/100km Bensín, kæmi út í fyrsta sæti á þessum forsendum og þar sem ég á hann skuldlaust og hann bilar ekki meir en nýjir bílar í dag, þá er viðhaldskostnaður minni en sá peningur sem fer í okurlán sem flestir taka fyrir nýjum bílum.  Tala ekki um það sem ég get gert á þessum bíl sem er ómögulegt á bílunum sem eru í 10 efstu sætunum og vel það. 

Eins tók ég þann bíl sem þykir besti notaði bíllinn í dag skv. frétt mbl nýlega, sem er Toyota Avensis 2007.  Sá bíll er að seljast á frá 1,3 millur uppí 2.9 fyrir íburðarmeiri útgáfur en ég setti hann á 2 milljón sléttar og 1,8 bensín útgáfan eyðir 7,2 á hundraðið.  Hann kæmi út í fjórða sæti á listanum og afföllin af slíkum kaupum eru mun minni en ef þú kaupir splunkandi nýjan bíl. Eins er þetta mun meiri bíll en þessi krútt sem eru í topp tíu sætunum.

Einnig er eftirtektarvert að lang flestir bílarnir eru dísilbílar en samkvæmt nýjust fréttum er dísil útblástur eitraðri en bensín útblástur.

Ef praktík rekur ekki fólk í að versla nýjan bíl af umboðinu, hvað er það þá?  Er það lífsgæðakapphlaupið a la 2007 eða hégómi?  

Allavega skemmtilegar mótsagnir í þessari viðleitni við að vera grænn og spara, og versla nýjan eiturspúandi dísilbíl.  


mbl.is Eyðslugrennstir ekki hagkvæmastir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband